Opið menntaefni fyrir þekkingarþróun og starfsþjálfun kennara
Spuni 2011 Netverkfæri til náms og kennslu
1. Spuni 2011 Netverkfæri til náms og kennslu Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir Verkefnastjóri Tungumálatorgsins Menntakvika 2011
2.
3.
4.
5.
6.
7. http://tungumalatorg.is/spuni Aðstæðubundið nám Á Spuna fylgdust þátttakendur með kynningum, tóku þátt í umræðu um gagnsemi verkfæra, svöruðu könnunum, ígrunduðu starf sitt og prófuðu valin verkfæri með eigin nemendum Menntakvika 2010
Spuni 2011 – netverkfæri til náms og kennslu Á Netinu má finna mikið úrval af hugbúnaði sem kemur að góðum notum í skólastarfi og hefur úrval af verkfærum sem nýtast vel við nám og kennslu tungumála aldrei verið meira. Á vormisseri 2011 var boðið upp á námskeiðið Spuni 2011 á Tungumálatorgi þar sem athyglinni var beint að verkfærum á neti sem tengjast samskiptum, skapandi verkefnavinnu, hljóð- og myndvinnslu, miðlun efnis, höfundarétti o.fl. Námskeiðið sem styrkt var af Endurmenntunarsjóði grunnskóla fór fram í fjarnámi. Náms- og kennsluefni var miðlað á vef námskeiðsins á Tungumálatorgi og samskipti þátttakenda fóru fram á vefnum og í tölvupósti. Áhugi og tími til að fylgjast með kynningum, taka þátt í umræðunni, skrá eigin ástundun í dagbók/lotubók og prófa valin verkfæri með hópi nemenda á námskeiðstímanum var forsenda fyrir þátttöku. Í erindinu verður fjallað um hönnun og útfærslu námskeiðsins, þátttöku kennara og notkun þeirra með nemendum. Kynntar verða niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir í lok námskeiðs, fjallað um hugmyndafræði starfssamfélaga og möguleika starfsþróunarnámskeiða í anda Spuna þar sem áhersla er lögð á samræður, ígrundun, samvinnu kennara og samhengi við starfið.
46 – rúmlega 20 – 17 diplómur
Samræður, ígrundun, samvinna og samhengi við starfið