2. Yfirlit
Atvinnuleysistryggingar – almennar upplýsingar
Réttindi og skyldur
Kynning á helstu þjónustuþáttum
Vinnumiðlun
Ráðgjafaþjónusta
Vinnumarkaðsúrræði
Atvinnuleit
Annað fyrir atvinnuleitendur
3. Vinnumálastofnun
Heyrir undir velferðarráðuneytið
Fer meðal annars með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu
og daglega afgreiðslu atvinnuleysistryggingasjóðs
Starfar samkvæmt lögum
nr 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar
nr 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir
Markmið laganna er
• að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir
þátttakendur á vinnumarkaði
• að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir
vinnuafli í landinu
4. Skráning - Vinnumiðlun - Ráðgjöf
Nýskráning og móttaka
Móttaka umsókna um atvinnu- og atvinnuleysisbætur, vottorða og
gagna sem tengjast umsóknum, t.d. vottorð
vinnuveitenda, skattkort, tilkynningar um tekjur, læknisvottorð o.fl.
Móttaka breytinga á umsóknum. Afgreiðsla staðfestingar
v/atvinnuleysis og staðfestingar v/afsláttar á lækniskostnaði
Vinnumiðlun
Hægt er að fá viðtal hjá vinnumiðlara til að fara yfir laus
störf, starfstengd vinnumarkaðsúrræði, væntingar og möguleika á
vinnumarkaði
Ráðgjafaþjónusta
Veitir upplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleysistryggingarkerfið, nám
og námsleiðir, námskeið á vegum
Vinnumálastofnunar, námssamninga, námsstyrki og fleira tengt
náms- og starfsráðgjöf
7. Réttur til atvinnuleysisbóta
Almenn skilyrði
Launafólk á aldrinum 18 – 70 ára
með búsetu, lögheimili og staddur á Íslandi.
Krafa er gerð um virka atvinnuleit:
Vera fær til flestra almennra starfa
Frumkvæði við atvinnuleit og vera reiðubúinn að
taka starfi á Íslandi sem greitt er fyrir skv. lögum og
kjarasamningum
Vilji og geta til að taka þátt í úrræðum samanber
lög um vinnumarkaðsaðgerðir
8. Upphæð atvinnuleysisbóta
Grunnatvinnuleysisbætur (100% bótaréttur)
kr. 172.609.-
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur
Bætur tekjutengdar í þrjá mánuði, grunnbætur fyrsta hálfa
mánuðinn.
70% af heildartekjum.
Launamaður - Miða skal við meðaltal heildarlauna á 6 mánaða
tímabili sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð
atvinnulaus.
Sjálfstætt starfandi – Miða skal við síðasta heila tekjuár.
Hámark tekjutengdra bóta kr. 272.113.-
Vegna hvers barns á framfæri yngra en 18 ára greiddar kr. 6.904.-
9. Útborgun atvinnuleysisbóta
Atvinnuleysisbætur eru greiddar út fyrsta virkan dag í
mánuði.
Greitt er fyrir einn mánuð í einu sem nær yfir
tímabilið 1. – 31. næsta mánaðar.
Veikindi - Ferðalög
Tilkynna skal veikindi sem hindra virka atvinnuleit.
5 daga veikindaréttur er á hverju 12 mánaða tímabili
eftir 5 mánuði á atvinnuleysisskrá
Atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar ef dvalið er erlendis
(þarf að tilkynna fyrir brottför)
10. Bótatímabil
Eitt bótatímabil er þrjú ár (36 mán.)
Bráðabirgðaákvæði X með lögum nr 54/2006
tímabundinn réttur til fjögurra ára bótatímabils til
31. desember 2012. Náði til þeirra sem misstu atvinnu og
fengu atvinnuleysisbætur greiddar í fyrsta skipti 1. mars 2008
eða síðar.
Hefur ekki verið framlengt
Einstaklingar sem eru að koma inn á nýtt bótatímabil eiga rétt á
tekjutengingu í þrjá mánuði.
Tekjutenging er einu sinni á hverju bótatímabili.
11. Reglubundin samskipti
Staðfesting á atvinnuleit fer fram í gegnum mínar síður
Þeir sem ekki hafa staðfest atvinnuleit 3. næsta mánaðar eru afskráðir úr
atvinnuleitinni.
12. Vinnumiðlun atvinnuleit innanlands og erlendis
Upplýsingar um störf í boði innanlands á www.vmst.is
Upplýsingar um laus störf erlendis á www.eures.is
Vinnumiðlarar og ráðgjafar Vinnumálastofnunar aðstoða
fólk við leit að starfi og veita nánari upplýsingar
Tenglasafn á aðrar ráðningarþjónustur á heimasíðu
Vinnumálastofnunar.
13. Atvinnuleit í öðru EES-landi
Vottorð U-2
Veitir rétt til að leita að starfi erlendis í allt að þrjá
mánuði á atvinnuleysisbótum.
Mögulegt er að sækja um til VMST eftir að bótaréttur
hefur verið staðfestur af Greiðslustofu.
ATH. Ekki er heimilt að fara til útlanda á
atvinnuleysisbótum nema með U-2
Eures - Evrópsk vinnumiðlun
Upplýsingar og ráðgjöf um atvinnuleit erlendis.
14. Hlutastörf og tilfallandi vinna
Tilkynna þarf alla vinnu og skila tilkynningu um tekjur
Hlutastarf
Breyta þarf umsókn um bætur í rafrænni umsókn
Fylla út breytingu á umsókn skriflega á sérstöku eyðublaði og
skila áætlun um tekjur vegna hlutastarfs (mínar síður).
Tilfallandi vinna
Tilkynna VMST með eins dags fyrirvara. Heimilt að tilkynna
samdægurs við sérstakar aðstæður.
Á við alla tilfallandi vinnu óháð lengd, tíma eða launum
Tilkynna um tekjur inn á “mínar síður” á heimasíðu Vmst þegar
laun eru greidd út.
Frítekjumark launafólks er kr. 59,047 kr
Þegar tekjur + atvinnuleysisbætur eru hærri en sem nemur
óskertum rétti + frítekjumark þá skerðast atvinnuleysisbætur um helming
þeirra tekna sem umfram eru.
16. Sjálfstætt starfandi einstaklingar
Ekki má opna virðisaukaskattsnúmer á eigin kennitölu
samhliða atvinnuleysisbótum.
Einstaklingur getur ekki verið í sjálfstæðum rekstri
meðfram atvinnuleysisbótum.
Þeim sem býðst vinna sem verktakar á eigin kennitölu
verða að afskrá sig á meðan verkefni/vinnu stendur.
17. Upplýsingaskylda
Mikilvægt er að tilkynna um breytingar á högum
heimilisfang, síma, netfang
vinnu (fullt starf, hlutastarf, tilfallandi vinnu)
tekjur - t.d. laun, lífeyrisgreiðslur, fjármagnstekjur,
styrkir
þátttöku í námi
orlof og ferðir utanlands án U-2
veikindi sem hindra virka atvinnuleit
(5 daga veikindaréttur á ári eftir 5 mánuði samfellt á skrá)
skerta vinnufærni eða óvinnufærni
Ef ekki er tilkynnt getur það leitt til biðtíma/viðurlaga
18. Biðtími og viðurlög
Komið getur til biðtíma eða viðurlaga í tengslum við
starfsmaður segir upp starfi
starfsmaður er valdur að eigin uppsögn
námsmaður hættir námi án lokaprófs
starfi hafnað
atvinnuviðtali hafnað
þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum hafnað
látið hjá líða að veita upplýsingar eða tilkynna
breytingar á högum
Atvinnuleitandi hefur ávallt tækifæri til að skila skýringu
19. Vinnumarkaðsúrræði
Markmið vinnumarkaðsúrræða
Sporna gegn atvinnuleysi
Auðvelda fólki að halda virkni
Stuðla að tengslum við atvinnulífið
Endurmenntun – viðhalda og öðlast nýja hæfni
Tegundir vinnumarkaðsúrræða
Starfstengd
úrræði, námskeið, námsúrræði, atvinnutengd
endurhæfing og ráðgjöf
21. Nám og atvinnuleysisbætur
Mikilvægt er að fólk sem missir atvinnu sé virkt og nýti
tímann til að styrkja sig og efla færni á vinnumarkaði
Námslán – fyrir þá sem ákveða að hætta atvinnuleit um
lengri tíma og fara í formlegt nám.
Atvinnuleysisbætur – fyrir þá sem eru í virkri atvinnuleit og
vilja nýta tíma sinn til að afla sér þekkingar og færni með
því að sækja námskeið og styttra nám. Sbr. reglugerð nr.
13/2009.
Nám á eigin vegum verður að vera samþykkt af
Vinnumálastofnun og uppfylla skilyrði í samræmi við reglugerð.
22. Námssamningar
Námssamningur veitir atvinnuleitenda möguleika á að
stunda formlegt nám í eina námsönn (13 vikur).
Skilyrði fyrir námssamningi
að hafa starfað sem launamaður samfellt síðustu 6
mánuði á innlendum vinnumarkaði
námið þarf að vera skilgreint sem vinnumarkaðsúrræði
samráð við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á
námi og námskeiðum
23. Viðmið fyrir nám
í framhaldsskóla og háskólastigi
Nám í dagskóla á framhaldsskólastigi er ekki
samþykkt samhliða atvinnuleit
Að höfðu samráði við náms- og starfsráðgjafa er
hægt að gera námssamning um 50% nám í
fjarnámi/kvöldskóla á framhaldsskólastigi (9 einingar)
Gerður er námssamningur vegna náms á
háskólastigi – 10 ECTS einingar
Með fleiri einingum á misseri skerðast bætur í ákv. hlutfalli.
Nánari upplýsingar hjá náms- og starfsráðgjafa.
24. Námskeið Vinnumálastofnunar
Námskeið skipulögð af Vinnumálastofnun eru
atvinnuleitendum að kostnaðarlausu.
Upplýsingar og skráning hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar
Hægt er að sækja um námsstyrk til greiðslu hluta af
námskeiðsgjaldi vegna annarra námskeiða en þeirra sem
Vinnumálastofnun skipuleggur
Umsókn um námsstyrk skal skila til ráðgjafa
Sækja þarf um áður en námskeið hefst. Skriflegt svar
staðfesting á greiðslu Vmst.
Nám verður að vera samþykkt af Vinnumálastofnun
25. Styrkir og afsláttarkjör
Námsstyrkur
Til greiðslu námskeiðsgjalda. Skilyrði er að námið auki líkur á vinnu
og að umsækjandi hafi verið a.m.k. mánuð á skrá. Sækja þarf um
áður en námið hefst á þar til gerðum eyðublöðum
Búferlastyrkur
Heimilt er að veita styrk vegna búferlaflutnings innanlands frá
lögheimili til þess staðar sem lögheimili er flutt í því skyni að sækja
vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega boðið
fastráðningu í starf
Lækniskostnaður
Afsláttur fyrir atvinnuleitendur sem hafa verið atvinnulausir samfellt
í 6 mánuði. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun við komu á
heilsugæslustöð eða lækni
26. Hvað stendur atvinnuleitendum til
boða hjá öðrum?
Stéttarfélög í samstarfi við fjölmarga aðila bjóða félagsmönnum sem
hafa misst vinnu og fá greiddar atvinnuleysisbætur frá
Vinnumálastofnun fjölbreytta valkosti.
Ýmis sveitarfélög bjóða atvinnuleitendum fríðindi, t.d. frítt í sund,
líkamsrækt og bókasafnskort. Atvinnuleitendum er bent á að leita
upplýsinga á skrifstofum viðkomandi sveitarfélags.
Upplýsingatorg fyrir atvinnuleitendur:
www.betritid.is
www.menntatorg.is
www.raudakrosshusid.is
27. Skipulögð atvinnuleit
Nálgast atvinnuleit eins og vinnu
með ákveðin verkefni á hverjum degi
Ferilskrá og kynningarbréf
Gera vinnuáætlun og setja sér markmið
Skrifleg og mælanleg
Skráningarblöð – halda skrá yfir:
Störf sem sótt er um
Tengiliði í tengslaneti
Starfsviðtöl sem farið er í
Ráðningastofur og samskipti við þær
27
Leiðbeiningar um atvinnuleit, ferilskrárgerð og undirbúning fyrir atvinnuviðtölLög og reglugerðirÝmis eyðublöðStarfavísi sem inniheldur upplýsingar um laus störf í boði á landsvísu og eru þær uppfærðar á 3 tíma frestiTenglar á aðrar ráðningarþjónustur og stofnanir
Með lagabreytingunni er tekið tillit til tilfallandi veikinda atvinnuleitenda en þeir munu teljast vera í virkri atvinnuleit þrátt fyrir veikindin í allt að fimm daga samtals. Heimilt er að nýta dagana í tvennu lagi á hverju tólf mánaða tímabili enda hafi atvinnuleitandi verið skráður innan kerfisins í fimm mánuði samtals frá fyrstu skráningu á sama greiðslutímabili. Eins og verið hefur ber atvinnuleitanda ávallt að tilkynna um veikindin til Vinnumálastofnunar. Þetta ákvæði laganna öðlast gildi 1. mars 2011.